30-07-2009

Réttu mér hjálparhönd

Sálin hans Jóns míns er ađ senda frá sér enn eitt glćnýtt lag sem er ţađ seinna af tveimur er kemur frá sveitinni ţetta sumariđ.
Ópusinn heitir "Réttu mér hjálparhönd" og eru höfundar lags og texta ţeir Guđmundur Jónsson og Friđrik Sturluson og er fáanlegt á nýju safnplötunni Pottţétt 50 eđa til niđurhals á Tónlist.is.

Lagstúfinum má lýsa sem kleyfhuga ţví fyrriparturinn er kántrýskotinn en seinna í viđlaginu brestur á međ kraft-poppi, a la Bon Jovi....(ef ţetta hjálpar einhverjum).
Textinn fjallar um sögumann nokkurn sem gengiđ hefur götu gleđinnar ansi greitt. Hann hefur ná botninum og biđur gest og gangandi um ađ rétta sér hjálparhönd (...ţetta minnir mig á hnípna ţjóđ í miđju Atlandshafi nú um mundir).

Hljómsveitin er búin ađ vera á stífu tónleikahaldi undanfariđ eina og hálfa áriđ og verđur ađ eitthvađ fram á haust, er viđ tekur veglegt vetrafrí.

Um verslunarmannahelgina verđur Sálin hans Jóns míns á faraldsfćti, fyrst á Ţjóđhátíđ Vestmannaeyjum, laugardaginn og á Ein međ öllu í Sjallanum Akureyri, daginn eftir.

Adios!



E-mail: gummijonss@simnet.is




Nćstu tónleikar

  Auglýst síđar...


.